Leit

hafa samband

LOKA

Deila

LOKA

Forsíða » cern » Fréttir

Fyrsti háorkuáreksturinn hjá LHC sem er tekinn upp

9/12/09 Stefán Vilberg Engar athugasemdir

Stærsti eindahraðall heims hefur tekið upp fyrsta háorkuárekstur sinn með róteindum.

Eðlisfræðingar vonast til að þessir árekstrar muni hjálpa þeim að skilja fyrirbæri eins og hulduefni, andefni og að lokum sköpun alheimsins fyrir milljörðum ára síðan, sem er talinn hafa byrjað í gríðarlegri útþenslu sem kallast miklihvellur.

Árekstarnir urðu á þriðjudagskvöld þegar LHC fór í gegnum prufanir fyrir starfsemi næsta árs, sagði Christine Sutton hjá CERN.

Tveir geislar af róteindum sem ferðuðust í sitthvora áttina með afl uppá 1,18 trilljón eV framleiddu árekstrana, sagði hún. Atlas skynjarinn, einn af fjórum aðalskynjurunum, var að hluta til í gangi og gat numið árekstrana.

“Þau tóku upp nokkra árekstrana og einn þeirra lítur svo vel út að þeir eru með hann á vefsíðunni sinni”

Sutton sagði að áreksturinn hefði orðið þegar hraðallinn var settur uppí 1,18 TeV. Sama orka setti heimsmet  fyrir róteindahröðun í nóvember þegar geislarnir ferðuðust með 20% meiri krafti en Fermilab í Chicago hafði náð.

Stjórnendurnir eru með fullt af minni árekstrum á áætlun svo þeir geti stillt tækin og gert sig tilbúna fyrir öflugri árekstra.

CERN ætlar að setja af stað fleiri árekstra uppá 1,18 TeV en ekki er talið að það verði nýjar vísindauppgötvanir fyrr en geislinn fær ennþá meiri orku, eða í 3,5 TeV.

LHC er kominn af stað

3/12/09 Ketill Jóelsson Engar athugasemdir
LHC er kominn af stað

Hérna má sjá myndband frá gangsetningu stóra sterkeindahraðalsins núna í síðustu viku. Við erum að nálgast þann tímapunkt að LHC fari að uppgötva nýja eðlisfræði en á miðju næsta ári telja CERN að þau muni framkvæma árekstra uppá 3,5 TEV (Tera Electron Volt) sem er mun meira en áður hefur verið gert í eindahraðli, heildarkrafturinn sem hönnun LHC býður uppá er 7 TEV og mun geislum með þeim krafti vera skotið saman í framtíðinni.

… skoða færslu »

Myndir af fyrsta árekstrinum við LHC

3/12/09 Stefán Vilberg Engar athugasemdir
Myndir af fyrsta árekstrinum við LHC

Í gær voru nokkrir árekstrar á milli róteinda – fyrstu sinnar tegundar við LHC – teknir upp, þar á meðal sá sem myndin hér sýnir.

Geislar LHC (Large Hadron Collider – Stóri sterkeindahraðallinn) munu framkvæma milljónir árekstra.

Myndin var tekin í gær (23. Nóvember 2009) á rannsóknarstofu LHC í Genf, Sviss, þegar róteindageislar fóru að hringsóla um göng LHC í báðar áttir. Róteindirnar koma frá báðum áttum og klessa saman í miðjum ALICE skynjaranum, sendandi þannig út minni eindir í allar áttir sem eru numdar af skynjaranum.

[Heimild: ISNS]

Endurgangsetningu stóra öreindahraðalsins LHC frestað til októbers

20/6/09 Þór Adam 4 Athugasemdir

Stóri sterkeindahraðallinn mun að öllum líkindum vera gangsettur að nýju í október eftir að vísindamennirnir við hann hafa framkvæmt allar nauðsynlegar prófanir og bætt við öryggisráðstöfunum sem koma í veg fyrir endurtekningu bilunarinnar sem stöðvuðu hann á síðasta ári. Endurgangsetningin var upprunalega áætluð í september en hefur nú verið frestað um nokkrar vikur.

Áætlaður kostnaður við viðhald og aukin öryggiskerfi við hraðalinn næstu ár er talinn vera um 40 milljónir svissneskra franka, eða um 37 milljónir dollara.

Þegar hraðallinn fer í gang munu vísindamenn nota hann til þess að skella saman róteindum á gífurlegum hraða inni í 27 kílómetra löngum hringlaga göngum. Með því að nema hvaða eindir verða til við árekstrana vonast þeir til þess að skilja betur þær grunneindir mynda alheiminn og allt í honum.

Cern: 50 ár af vísindum

12/6/09 Þór Adam Engar athugasemdir

CERN (Evrópsk samtök um kjarnorkurannsóknir) hefur verið í forystu vísinda seinustu 50 árin, og hafa margar uppgötvanir komið frá þeim, meðal annars internetið og PET skanninn, þeir voru fyrstir til að búa til andefni ásamt helling af öðrum uppgötvunum.

2 nóbelsverðlaun hafa verið veitt starfsmönnum CERN vegna rannsókna sem þeir hafa framkvæmt þar.

Hérna er hægt að sjá heimildarþátt frá 2007 sem gerður var vegna 50 ára afmælis CERN, talsverð umfjöllun hefur verið um CERN undanafið, meðal annars koma þeir við sögu í ,Angels and Demons’ skáldsögu eftir Dan Brown sem hefur nýlega komið út kvikmynd eftir. Einnig voru miklar dómsdagsspár í gangi þegar þeir hugðust setja í gang nýjan eindahraðal í haust, þar sem hermt væri eftir aðstæðum við mikla-hvell.

Nýjar athugasemdir

  • matthías orri elíasson: sælir...
  • Stefán Vilberg: Jább, væri gaman að væri nógu mikill peningur til. Ætli við ...
  • Arnar: Hálf svekkjandi að NASA er búið að blása af allar hugmyndir ...
  • Arnar: Var farinn að hafa áhyggjur, hlakka til að sjá eitthvað nýtt...
  • Guðni þór: Ef það þarf að búa til efnið þá ætti það eiginlega ekki að v...

Könnun

Hvernig finnst þér útlitið á nýju síðunni?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...

Póstlisti

Á póstlistann er sent fréttabréf tvisvar í mánuði með samansafni af því besta af síðunni