Leit

hafa samband

LOKA

Deila

LOKA

Forsíða » bíll » Fréttir

Bíll sem kemst á 1000 mílna hraða

3/12/09 Stefán Vilberg Engar athugasemdir
Bíll sem kemst á 1000 mílna hraða

Breskt lið sem vonast til að verða fyrst til að koma bíl á 1000 mílna hraða (1610 km/klst) hefur valið lokahönnunina fyrir bílinn. Sex tonna bíllinn sem kallast blóðhundurinn, mun verða drifinn áfram af þotuhreyfli úr Eurofighter þotu sem verður settur ofan á eldflaug. Mun bíllinn verða byggður í Bristol, Bretlandi.

Bílstjóri blóðhundsins setti heimsmetið á hraða bíls árið 2007 þegar hann fór á 1228 km/klst hraða, var það á bílnum ‘Thrust’. Green sagðist vonast til að bíllinn yrði tilbúinn til þess að reyna að bæta metið árið 2011. Metstilraunin verður í Suður-Afríku á uppþornuðum vatnsbotni. Green sagði að vatnsbotninn væri fullkominn vegna þess að hann getur borið bílinn en er nógu mjúkur þannig að títan eða kolefnisstyrkt álhjólin geta sokkið um ca. 1 cm, veitir það  bílnum dempun eða hlýðni þannig að hægt sé að stýra honum á lægri hraða. (Á meiri hraða þá stýrist hann meira eins og hraðbátur heldur en bíll.) Brautin verður 16 kílómetra löng (10 mílur)
[Inniheldur myndband]
… skoða færslu »

Vélmennið AIDA mun breyta sambandi okkar við bílinn

2/11/09 Ketill Jóelsson Engar athugasemdir
Vélmennið AIDA mun breyta sambandi okkar við bílinn

Rannsakendur við MIT eru að þróa AIDA (Affective Intelligent Driving Agent), nýtt vélmenni sem á að gjörbreyta upplifun okkar í bílnum. Verkefnið er samvinna á milli Personal Robots Group við MIT Media Lab, MIT SENSEable City Lab og Volkswagen Group of America’s Electronics Research Lab.

“Með alnánd skynjara og tölva eru upplýsingar um umhverfi okkar ávallt gnægar. AIDA gerir tilraun til þess að nýta þetta gríðarlega magn af upplýsingum, með því að virkja persónuleg raftæki okkar til atferlisstuðnings,” sagði Carlo Ratti forstöðumaður SENCEable City Lab. “Í þróunarferli AIDA spurðum við okkur hvernig við gætum hannað kerfi sem gæti boðið fram leiðsögn líkt því sem upplýstur og vingjarnlegur félagi myndi bjóða fram.”

AIDA hefur samskipti við ökumann gegnum lítið vélmenni sem er fast við mælaborðið. “AIDA byggir á langri reynslu okkar á því að búa til félagslynd vélmenni,” útskýrði Cynthia Breazeal, forstöðumaður Personal Robots Group við MIT Media Lab. “Við erum að þróa AIDA þannig að hún muni lesa skapbrigði bílstjórans út frá andlitsbrigðum og öðrum vísbendingum til þess að svara á félagslega hentugan og upplýstan hátt.”

AIDA hefur samskipti á mjög innilegan hátt, með mótun fyrir einhverskonar brosi eða bliki í augum. Með tímanum sjá málsaðilar fyrir sér að það myndist samhjálp á milli ökumannsins og AIDA, þar sem báðir aðilar læra af hvor öðrum og koma á nánu sambandi.

Til þess að bera kennsl á það hvað ökumaðurinn vill afreka greinir AIDA ferðir hans og heldur utan um leiðir  og ákvörðunarstaði. AIDA býr síðan til ímynd af borginni sem ekki sést útum bílrúðuna, tvinnar saman atburði í rauntíma og vitneskju á umhverfisaðstæðum, einnig skoðar hún auglýsta viðburði, ferðamannaaðdráttaröfl og íbúðahverfi.

“Þegar hún samtvinnar þekkingu um borgina með skilning á forgangsröðun og þörfum ökumannsins, getur AIDA gert mikilvægar ályktanir,” útskýrir Assaf Biderman hjá SENSEable City Lab. “Á innan við viku verður AIDA búinn að finna út hvar þú vinnur og býrð. Skömmu seinna mun hún leiðbeina þér í uppáhalds matvörubúðina þína og mun hún ávallt stinga uppá leið sem sneiðir fram hjá líklegum umferðarhnútum. Á leiðinni gæti AIDA stungið uppá því að þú takir bensín, þegar hún tekur eftir því að það er lítið í tanknum,” sagði Biderman. “AIDA getur líka gert athugasemdir við aksturinn þinn, hjálpað þér að spara bensín og benda þér á hvað megi fara betur í akstrinum svo hann sé sem öruggastur.”

AIDA er einnig í samstarfi með Audi til viðbótar við áður upptalda aðila. AIDA hópnum er stjórnað af Prófessor Cynthia Breazeal, Carlo Ratti og Assaf Biderman.

[Physorg sagði frá þessu]

Bílasýningin í Tokyo hafin

21/10/09 Stefán Vilberg Engar athugasemdir

Framúrstefnulegir hugmyndabílar, tengitvinnbílar, rafmagnsbílar og jafnvel vetnis skotta (vespa). Berjast um sviðsljósið á bílasýningunni í Tokyo sem hófst í dag.

Frá ofurþunnum Nissan rafbílum sem halla sér í beygjum, til léttvigtar Toyota sportbíls og Daihatsu bifreiðar með hönnun sem byggir á körfu, allt eru þetta bifreiðar sem bera sýn japanskra framleiðenda á framtíðinni.

Meðan tvinnbílar eru ennþá frekar stórt númer þá eru rafmagnsbílar byrjaðir að stela sviðsljósinu vegna nýlegra tæknframfara í endurhlaðanlegum rafhlöðum sem færir fjöldaframleidda rafmagnsbíla nær raunveruleikanum.

Meðal bíla á sýningunni er hugmynda rafmagnsbíllinn FT-EV II frá Toyota, en Toyota ætlar sér að vera búið að koma með rafmagnsbíl á markað árið 2012. Einnig sýndu þeir Prius tengitvinnbíl.

Nissan opinberaði hugmyndabíl sem hallar sér til hliðar meðan farið er í beygjur. Hann er aðein 1,1 meters breiður og tekur tvo í sæti, einn frammí og einn afturí.

Nissan mun einnig sýna ‘Leaf’ sem er rafmagnsbíll sem verður sýndur almenningi í fyrsta skipti á sýningunni. Þessi miðlungsstóri bíll mun fara í sölu seint á árinu 2010.

“Leaf mun hafa mikil áhrif á iðnaðinn sem fyrsti útblásturslausi bíllinn á hæfilegu verði,” sagði Carlos Ghosn hjá Nissan.

“Nú er tíminn fyrir útblástursleysi. Sjálfbær farartæki eru í augsýn. Við stöndum á þröskuldi nýs tímabils í bílaiðnaði.”

Frá Honda kemur EV-N, sætur nýr hugmyndarafmagnsbíll.

Vegna mikilla tækniframfara eru rafmagnsbílar sífellt að nálgast það að vera á samkeppnishæfu verði.

“Tvinnbílar hafa ókosti; þeir eru þungir, hafa flókið vélakerfi og nota ennþá bensín,” sagði Tatsuya Mizuno, framkvæmdastjóri ‘Mizuno Credit Advisory’, sjálfstæðs ráðgjafafyrirtækis.

“Rafmagnsbílar eru með einfaldara kerfi, eru léttari og leysa engan koltvísýring út. Ef hægt er að finna lausn á miklum framleiðslukostnaði þá hafa rafmagnsbílar marga kosti framyfir tvinnbíla,” sagði hann.

Efnarafals bílar, sem keyra á vetni og losa aðeins út vatn sjást líka á Tokyo sýningunni. Það eru jafnvel efnarafals skotta og efnarafals hjólastóll frá Suzuki.

Þó hár framleiðslukostnaður bæði á efnarafals bílum og vetni sé mikil hindrun þá telja sumir að þau muni að lokum yfirtaka markaðinn frá rafmagnsbílum.

“Við teljum að efnarafals rafmagnsbíll muni vera hin endanlega gerð af bifreiðum framtíðarinnar,” sagði forseti Hondu, Takanobu ito.

Heimasíða sýningarinnar

Tveir nýjir tvinnbílar frá Honda á næsta ári

14/7/09 Þór Adam Engar athugasemdir

Honda hefur tilkynnt að þeir muni hefja sölu í Japan á CR-Z sem er sportbíll í febrúar á næsta ári og Fit hybrid fyrir lok ársins 2010.

Talið er að CR-Z muni kosta um 25.000 evrur og vélin verði 1,8 lítra bensínvél með 140 hestöflum ásamt minni rafmagnsvél.

Fit hybrid muna nota 1,0 lítra bensínvél í staðinn fyrir 1,5 lítra bensínvélina sem venjuleg Honda Fit notar.

Nýjar athugasemdir

  • matthías orri elíasson: sælir...
  • Stefán Vilberg: Jább, væri gaman að væri nógu mikill peningur til. Ætli við ...
  • Arnar: Hálf svekkjandi að NASA er búið að blása af allar hugmyndir ...
  • Arnar: Var farinn að hafa áhyggjur, hlakka til að sjá eitthvað nýtt...
  • Guðni þór: Ef það þarf að búa til efnið þá ætti það eiginlega ekki að v...

Könnun

Hvernig finnst þér útlitið á nýju síðunni?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...

Póstlisti

Á póstlistann er sent fréttabréf tvisvar í mánuði með samansafni af því besta af síðunni