Leit

hafa samband

LOKA

Deila

LOKA

Forsíða » Frægir vísindamenn

Frægir vísindamenn


Epikúros | Carl Sagan | Edward Witten


Edward Witten

Edward Witten, prófessor við Institute for Advanced Study

Einn merkasti eðlisfræðingur okkar tíma. Eini eðlisfræðingurinn sem unnið hefur Fields-orðuna, ein æðstu verðlaunin fyrir afrek í stærðfræði. Hans helsta viðfangsefni er kennileg eðlisfræði og rannsóknir á strengjafræði, en hann er af mörgum talinn sá fremsti í heiminum í þeim rannsóknum og árið 1995 setti hann fram tilgátu um tilvist M-kenningarinnar. Hérna má sjá viðtal við Witten þar sem hann talar um strengjafræði.

“Fegurðin í jöfnum Einsteins er til dæmis jafn raunveruleg og fyrir öllum sem hafa upplifað hana í formi fallegrar tónlistar. Núna á tuttugustu öldinni höfum við lært það að jöfnur sem virka hafa innri samhljóm.”

“Í eðlisfræði tuttugustu aldarinnar höfum við komist að því að jöfnurnar sem virka, og í raun og veru lýsa náttúrunni á víðtækann og einfaldann hátt, eru mjög fallegar og fágaðar.”

“Ljósbylgjur sjáum við með augunum, en til þess að sjá hinar eindir alheimsins þurfum við háþróaða nútímatækni.”

“Strengjafræði er tilraun til þess að öðlast djúpari skilning á náttúrunni með því að hugsa ekki um grunneind eins og lítinn punkt, heldur eins og litla lykkju af sveiflandi streng.”


Carl Sagan

Carl Sagan (9. nóvember 1934 – 20. desember 1996)

Stjörnufræðingur og mikill boðberi vísinda og vísindalegrar hugsunar. Hann er upphafsmaðurstjörnulíffræðinnarog hvatti mjög til þess að leitað yrði að vitsmunalífi utan jarðar. Hann er einnig heimsfrægur fyrir bækur sínar um vísindi og fyrir sjónvarpsþættina Cosmos er náðu gríðarlegum vinsældum um allan heim.

“Það er mun betra að átta sig á alheiminum eins og hann í raun og veru er heldur en að halda fast í hjátrú, hversu hughreystandi sem hún er.”

“Ímyndunaraflið flytur okkur oft á staði sem ef til vill voru aldrei til, en án þess förum við hvergi.”

“Við gerum heim okkar mikilvægan með hugrekki spurninga okkar og með dýpt svara okkar.”

“Okkar tegund þarfnast, og á skilið, lýð með virkan hug og grunnskilning á því hvernig heimurinn virkar.”

“Alheiminum er ekki skylt að vera í fullkominni eindrægni við metnað mannanna.”


Epikúros

Epikúros (341 f.Kr. – 270 f.Kr.)

Upphafsmaður epikúrismans, einnar vinsælustu heimspekistefnu helleníska tímans. Hann trúði því, eins og Demókrítos, að heimurinn samanstæði af örsmáum efnislegum eindum, sem nefnd voru ódeili, eða atóm. Einnig var hann einn fyrsti gríski hugsuðurinn til að brjótast undan guðsótta og guðsdýrkun. Meðal frægra atriða úr heimspeki Epikúrosar var Bölsvandinn

“Það er ekki það sem við eigum, heldur það sem við njótum, sem uppfyllir okkur”

“Dauðinn er okkur ekki áhyggjuefni, því á meðan við erum til, þá er hann ei hér. Og þegar hann kemur, þá erum við ei til.”

“Því meira sem erfiðið er, því meiri dýrð í að buga það”

Nýjar athugasemdir

  • matthías orri elíasson: sælir...
  • Stefán Vilberg: Jább, væri gaman að væri nógu mikill peningur til. Ætli við ...
  • Arnar: Hálf svekkjandi að NASA er búið að blása af allar hugmyndir ...
  • Arnar: Var farinn að hafa áhyggjur, hlakka til að sjá eitthvað nýtt...
  • Guðni þór: Ef það þarf að búa til efnið þá ætti það eiginlega ekki að v...

Könnun

Hvernig finnst þér útlitið á nýju síðunni?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...

Póstlisti

Á póstlistann er sent fréttabréf tvisvar í mánuði með samansafni af því besta af síðunni