Leit

hafa samband

LOKA

Deila

LOKA

Forsíða » Lífvísindi » Lærdómur heldur heilanum heilbrigðum

Lærdómur heldur heilanum heilbrigðum

March 4, 2010 Ketill Jóelsson Engar athugasemdir
post thumbnail

Taugalíffræðingar við University of California Irvine hafa birt fyrstu handbæru sannanirnar á því að lærdómur haldi heilanum heilbrigðum. Sem leiðir til þess að hugræn þjálfun getur minnkað slæm áhrif öldrunnar á minnið og hugann.

Þau notuðu nýstárlega myndræna aðferð til þess að rannsaka minnið. Rannsóknarhópurinn var leiddur af Lulu Chen og Christine Gall, hópurinn fann út að venjulegt nám virkjar tauganema sem halda virkni heilafrumna í góðu ástandi.

Þessir nemar eru virkjaðir af próteini sem kallast BDNF (brain-derived neurotrophic factor), sem auðveldar vöxt og aðgreiningu tenginga, semsagt taugamóta, sem eru ábyrg fyrir samskiptum á milli taugafrumna. BDNF er lykillinn að myndun minninga.

“Niðurstöðurnar staðfesta mikilvæg tengsl milli náms og heilavaxtar og sýna fram á leiðir þar sem við getum mögulega magnað þessi tengsl með framtíðar meðferðum,” sagði Chen, útskrifaður rannsakandi í líffæra- og taugalíffræði.

Niðurstöður rannsóknarinnar birtust í Proceedings of the National Academy of Sciences nú í vikunni.

Auk þess að uppgötva það að heila starfsemi virkji BDNF viðbrögð á stöðum þar sem taugafrumur þróa taugamót, hafa rannsakendur komist að því að þetta ferli er skylt námtengdum hljóðföllum heilans, svokölluðum Þeta hljóðföllum (theta rhythm), sem eru ómissandi við kóðun nýrra minninga.

Þeta hljóðföll eiga sér stað í drekanum(partur heilans) og þau felast í því að fjölmargar taugafrumur virkjast í takt sem samsvarar þrisvar til átta sinnum á sekúndu. Þessi hljóðföll hafa verið tengd langtíma eflingu heilans, semsagt frumu-kerfinu að baki námi og minni.

Við rannsókn á nagdýrum fann hópurinn út að bæði óskipulagt nám og gervibeiting þetu hljóðfalla kveiktu á BDNF viðbrögðum við uppruna taugamóta.

“Þessi tengsl hafa áhrif á að viðhalda góðri heilsu heilans,” sagði Gall, prófessor í líffæra- og taugalíffræði. “Það eru til sannanir fyrir því að Þetu hljóðföll veikjast þegar við eldumst, og uppgötvanir okkar benda til þess að þetta getur valdið skerðingu minnis. Hins vegar þýðir þetta að með því að vera andlega virkur fram eftir aldri er hægt að halda taugaviðbrögðum BDNF stöðugum, sem getur takmarkað minnis- og vitsmunalegt tap.
“Vísindamenn eru nú að kanna hvort að vöxtur heilans sem stafar af lærdómi minnki með aldrinum, ef svo er, þá hvort hægt sé að snúa ferlinu við með nýrri gerð tilraunalyfja.

Rannsóknin var unnin af University of California – Irvine og Physorg.com fjallaði um málið.

Hugleiðing blaðamanns: Þetta styrkir stoðir þeirrar kenningar að með því að vinna eða halda sér virkum með lestri/námi langt fram eftir aldri er hægt að halda vitsmunum og viti mun lengur en annars. Ég veit að það mun ég reyna að gera.

Skrifa athugasemd við færslu:







Nýjar athugasemdir

  • matthías orri elíasson: sælir...
  • Stefán Vilberg: Jább, væri gaman að væri nógu mikill peningur til. Ætli við ...
  • Arnar: Hálf svekkjandi að NASA er búið að blása af allar hugmyndir ...
  • Arnar: Var farinn að hafa áhyggjur, hlakka til að sjá eitthvað nýtt...
  • Guðni þór: Ef það þarf að búa til efnið þá ætti það eiginlega ekki að v...

Könnun

Hvernig finnst þér útlitið á nýju síðunni?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...

Póstlisti

Á póstlistann er sent fréttabréf tvisvar í mánuði með samansafni af því besta af síðunni