NASA hefur líklega fundið 600 milljónir tonn af vatnsís á norðurpól tunglsins
Með því að nota gögn frá ratsjá NASA sem er innbyggð í indversku geimflaugina Chandrayaan-1 þá hafa vísindamenn numið vatnsís nærri norðurpól tunglsins. Þeir fundu 40 litla gígi með vatnsís. Gígarnir eru frá 2-15 kílómetrum í þvermál. Þó heildarmagn ís velti á þykkt hvers gígs þá er það metið svo að það séu að þar sé að finna að minnsta kosti 600 milljón tonn af ísvatni. Talið er að þetta mikla magn vatns gæti einn daginn nýst til að framleiða súrefni eða viðhalda tunglstöð.
Ratsjáin sem kallast Mini-SAR sendi vinstri-skautaðar útvarpsbylgjur út til að mæla yfirborðs grófleika tunglsins. Á meðan slétt yfirborð sendir frá sér andstæðar hægri skautaðar bylgjur þá sendir gróft yfirborð frá sér vinstri skautaðar bylgjur.
Vatnsís sendir einnig frá sér vinstri skautaðar bylgjur. Mini-SAR mælir hlutfallið á milli skautunar útvarpsbylgnanna. Hinsvegar getur hlutfall skautunarinnar ekki á eigin spýtur greint á milli grófra svæða og svæða með vatnsís.
Norðurpóls gígarnir höfðu hærra hlutfall vinstri skautaðra bylgna að innan en á brúnunum. Það bendir til að efni innan í gígnum frekar en yfirborðsgrófleiki olli þessu. Samkvæmt NASA þyrfti vatnsísinn að vera frekar hreinn og að minnsta kosti einhverjir metrar á þykkt til að senda frá sér þetta merki.
Í nóvember þá klessti NASA geimfari í Cabeus gíginn og þó áreksturinn hafi ekki verið jafn tilkomumikill að sjá og margir höfðu vonast til þá fundust þar sönnunargögn um vatn.





Hálf svekkjandi að NASA er búið að blása af allar hugmyndir (amk. til skamms tíma) um ferðir til tunglsins. En það kemst kannski aftur á dagskrá seinna þegar það verður ‘praktískara’.
Jább, væri gaman að væri nógu mikill peningur til. Ætli við munum samt ekki læra meira og hraðar um sólkerfið og alheiminn með því að senda geimför á fleiri staði frekar en byggja geimstöð á tunglinu.
Þó að það væri vissulega mikilvæg æfing fyrir framtíðina þegar við munum vonandi byrja að byggja geimstöðvar á öðrum plánetum.