Tækni breytir hugsunum í hljóð í rauntíma
Með því að koma rafskautum fyrir inni í heila manneskju með locked-in syndrome (þar sem manneskja er vakandi og með meðvitund en er nánast algjörlega lömuð og getur því ekkert hreyft sig), hafa vísindamenn uppgötvað aðferð til þess að flytja taugaboð frá heilanum þráðlaust til talgervils. Ferlið frá hugsun til hljóðs tekur um 50 millisekúndur, sem er sami tími og það tekur ólamaðan mann að segja hugsanir sínar. Rannsóknin er sú fyrsta sem gefur kost á búnaði sem endist mannsævi, er þráðlaus og gerir notanda hennar kleift að stjórna tæki fyrir utan líkama sinn í rauntíma.
Þó svo að fyrstu gerðir þessarar tækni lesi bara nokkur hljóð þá eru endurbætur í fullum gangi og ekkert sem stendur í vegi fyrir þróun tækninnar. Ímyndið ykkur menn á borð við Stephen Hawking, sem gætu hent lyklaborðinu og “talað” í rauntíma.
Meiri upplýsingar er að finna á Physorg.com, einnig gaf teymið niðurstöður sínar út í nýlegri útgáfu af PLoS ONE.





Nýjar athugasemdir