TeliaSonera setur upp fyrsta 4G netið
Norræna símafyrirtækið TeliaSonera tilkynnti á mánudaginn var um uppsetningu á fyrsta 4G/LTE netinu og var það sett upp í Stokkhólmi og Osló, allt að 10 sinnum hraðara en núverandi 3G netið.
“Í dag mun TeliaSonera, vera fyrsta fyrirtækið í heiminum til að opna 4G net tilbúið til notkunnar fyrir viðskiptavini í Stokkhólmi, Svíþjóð og Osló, Noregi”, sagði í tilkynningu frá fyrirtækinu síðastliðinn mánudag.
“4G netið mun opna fyrir möguleika á þjónustum sem þurfa á mjög miklum nethraða, svo sem sjónvarpsútsendingar, netspilun og fjarfundir”, sagði Kenneth Karlberg, stjórnarformaður TeliaSonera og yfirmaður farsímadeildarinnar.
Karlberg lýsti því yfir á blaðamannafundi að 4G netið væri “mestmegnis fyrir gagnaflutning eins og er” en bætti því við að farsímar sem styðjist við kerfið verði ekki komnir á markað fyrr en árið 2011.
Í nánari lýsingu á 4G kerfinu útskýrði fyrirtækið, “4G er allt að 10 sinnum hraðvirkara en 3G turbo netin sem eru notuð í dag.”
“4G verður auðvitað dýrara miðað við fyrirrennara þess, enda mun öflugra,” en einnig bætti Karlberg því við að 4G neti verði komið upp í Finnlandi og 25 sænskum borgum á árinu 2010.
Stærstu eigendur TeliaSonera eru sænska ríkið með 37% hlut og finnska ríkið með 13,7%, og hefur fyrirtækið rétt til þess að setja upp 4G/LTE á landsvísu í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi.
Það eru miklar líkur á því að venjulegar landlínur muni finna fyrir aukinni samkeppni vegna þessa í farmtíðinni, því 4G tæknin gefur möguleika á nethraða allt frá 40 Mb/s uppí 5Gb/s. Þar sem neðri mörk 4G tækninnar eru rúmlega tvöfalt hraðari heldur en bestu ADSL tengingar sem eru í boði á Íslandi má sjá að möguleikarnir eru gríðarlegir.
Þegar nýja netið í Noregi og Svíþjóð var testað sýndi það 42 Mb/s. Einnig hefur Japönum tekist að ná 5Gb/s og ætla þeir sér að setja það í gagnið á næsta ári.
Heimild: Physorg.com
Leiðrétt 17. des





1 GB/s (Gigabyte) er ekki það sama og 1 Gb/s (Gigabit) sem ég geri ráð fyrir að eigi að standa þarna. Að sama skapi gef ég mér að það eigi að standa 100 Mb/s (megabit) en ekki 100 mb/s (millibit). Aðeins að passa uppá framsetningu af gögnum
Að öðru leiti spennandi tækni
Þetta er auðvitað rétt hjá þér, takk fyrir ábendinguna.
Þessi mynd hérna ruglaði mig all svaðalega, http://www.iphonespies.com/wp-content/uploads/2009/10/4g.jpg .
Ég lagaði þetta og bætti örlítið við.
Fyrir utan það að það er ekki til neitt sem heitir millibit
En sé að það er búið að lagfæra og bæta við heimild svo það er bara þumall upp núna
Djöfull er þetta rosalegur hraði.. hardwired verður samt alltaf betra en þráðlaust