Leiðangur á vegum BBC niður í gíg óvirks eldfjalls í Papúa Nýju-Gíneu uppgötvaði nýlega týndan heim af furðulegum, nýjum og sjaldgæfum, dýrategundum, þar á meðal nýjar froskategundir, risavaxna rottutegund, fjöldi nýrra skordýra og nýja tegund af leðurblökum.
Hópur vísindamanna frá Bretlandi, Bandaríkjunum og Papúa Nýju-Gíneu tóku þátt í leiðangrinum og uppgötvuðu meira en 40 áður óséðar dýrategundir þegar þeir klifruðu niður í kílómetra langan gíg eldfjallsins
Mount Bosavi og könnuðu óspjallaða frumskógar kjörlendið og lífið sem þar hefur þróast í einangrun í um 200,000 ár. Í ótrúlegum fjölda uppgötvana úr einungis fimm vikna leiðangri voru meðal annars 16 mismunandi froskar sem aldrei höfðu sést áður, þrjár nýjar fisktegundir, og risavaxin rottutegund, sem gæti vel verið sú stærsta í heiminum.
Uppgötvanirnar eru af mörgum túlkaðar sem sönnunargögn fyrir fjölbreytileika regnskóganna og rannsóknarteymið vonar að þessi fundur vegi þungt í því að ákveða aðgerðir um alþjóðlega verndun slíkra vistkerfa. Þeir segja að regnskógar Papúa Nýju-Gíneu séu að eyðast sem nemur um það bil 3.5% árlega.
“Það var undravert að vera þarna og það er greinilega tími til kominn að við áttum okkur á því að þessi kjörlendi eru þess virði að vernda,” segir Dr. George McGavin, forsprakki leiðangursins.
Líffræðingateymið samanstóð af sérfræðingum frá Oxford háskólanum, London dýragarðinum og Smithsonian stofnuninni og talið er að þeir séu fyrstu vísindamennirnir sem nokkru sinni hafa stigið fæti niður í gíginn. Með þeim í för slógust meðlimir BBC Natural History Unit sem mynduðu leiðangurinn fyrir
þriggja þátta heimildarmynd sem sýnd er á BBC.

Rannsóknarhópurinn sá að gígurinn var heimili stórfenglegra fugla, og þar sem engar kattartegundir eða apategundir var þarna að finna eru helstu rándýrin risavaxnar eðlur. Einnig var að finna kengúrur en á þessum stað hafa þær þróast til lífs uppi í trjám. Fleiri nýjar dýrategundir voru felulitaðar Gekkó eðlur, froskar með vígtennur og fisktegund sem þeir kölluðu Henamo rymjarinn, vegna þess að hann framkallar eins konar rymjandi hljóð úr sundblöðru sinni.

“Þessar uppgötvanir eru mjög merkilegar,” sagði Steve Backshall, klifurmaður og náttúrulífsunnandi sem vingaðist svo vel við áður óséð Bosavi silky cuscus pokadýr, að það settist á öxl hans og uni sér vel.
“Heimurinn verður sífellt smærri og það verður með tímanum erfiðara og erfiðara að finna staði sem eru svona afskekktir.”
Nýjar athugasemdir