Leit

hafa samband

LOKA

Deila

LOKA

Forsíða » Myndbönd » Fréttir

Stærð alheimsins

8/1/10 Ketill Jóelsson 1 Athugasemd
Stærð alheimsins

Ég vil byrja árið og fyrstu greinina eftir (langt)  jólafrí á því að sýna ykkur myndband sem gefur góða hugmynd um stærð hins þekkta alheims okkar.

Ekki er annað hægt heldur en að setja hugan á fullan snúning fyrir árið 2010 og skella hugarfari 4 ára barns upp og byrja að spyrja: “hvað?”, “hvers vegna?”, “hvernig?”, “hvert?” og “afhverju?”.

Þetta er hugarfar sem allt of margir missa þegar komið er á fullorðinsár en er samt líklega eitt mikilvægasta hugarfar mannkynssögunnar.

Gleðilegt nýtt ár og vonandi eigum við eftir að njóta saman góðra frétta á komandi ári.
… skoða færslu »

Byggir Stonehenge eftirlíkingar

22/12/09 Ketill Jóelsson 1 Athugasemd
Byggir Stonehenge eftirlíkingar

Þetta myndband gefur okkur örlitla sýn á það hvernig var mögulegt að byggja meistaraverk eins og Stonehenge. Oftar en ekki er nóg að hafa einn mann með mikinn frítíma eins og í myndbandinu hér á eftir og er þá auðvelt að ímynda sér að nokkrir hugmyndaríkir menn með tugi þræla hefðu auðveldlega getað gert eitt stykki Stonehenge fyrr á öldum.

Gaman að nefna það að Stonehenge er talið hafa meðal annars verið notað við vetrarsólstöðu hátíðir og eitt af því sem styður þá kenningu er það að hringurinn er byggður þannig að sólsetur þann dag sem vetrarsólstöður eiga sér stað á lýsir á fyrirfram ákveðin stað. Vetrarsólstöður eru 21. desember, semsagt í gær.
… skoða færslu »

Vísindamenn búa til heimsins minnsta snjókarl

8/12/09 Ketill Jóelsson 2 Athugasemdir
Vísindamenn búa til heimsins minnsta snjókarl

David Cox vísindamaður hjá National Physical Laboratory á Englandi er sérfræðingur í nanó framleiðslutækni. Fyrir skömmu bjó hann til sitt nýjasta meistaraverk, með hjálp verkfæra við hæfi og skammt af fyndni þá bjó hann til heimsins minnsta snjókall, sem er 0,01 mm í þvermál (u.þ.b. einn fimmti af breidd mannshárs).

Cox byggði snjókallinn með “höndunum” með hjálp tækja sem eru til þess að ráðskast með nanóeindir. Í stað þess að nota snjó þá eru höfuð og búkur verunnar úr litlum perlum sem venjulega eru notaðar til þess að kvarða linsur rafeindasmásjár. Cox bræddi perlurnar saman með örlitlu magni af platiníum og notaði einbeittan jóna geisla til þess að grafa augun og brosið á. Að lokum notaði hann geislan til þess að koma fyrir litlum hnúð af platiníum í stað nefs, sem er minna en einn míkrómetri. Myndbandið hér á eftir sýnir hlutföllin mjög vel.
… skoða færslu »

“Science is cool” – Barack Obama

3/12/09 Ketill Jóelsson Engar athugasemdir
“Science is cool” – Barack Obama

Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hefur sett á stað verkefni sem hann kallar “Educate to Innovate”, eða “Menntun til Innblásturs.” Sem er herferð sem ætluð er að auka áhuga námsmanna á því að byggja sér upp starfsframa í vísindum, tækni, verkfræði og stærðfræði.

Í ræðunni hér á eftir talar hann um mikilvægi þessara greina fyrir framtíðina, og flest getum við eflaust verið sammála um mikilvægi vísindalæsis og gagnrýninnar hugsunar. Þessi herferð færir námsmönnum í Bandaríkjunum þessa eiginleika vonandi á silfurfati. Njótið vel.
… skoða færslu »

Sjötta skilningarvitið – Pranav Mistry

22/11/09 Stefán Vilberg Engar athugasemdir
Sjötta skilningarvitið – Pranav Mistry

Hérna er á ferðinni gífurlega áhugavert myndband frá TED India þar sem Pranav Mistry fjallar um gríðarlega möguleika nýrrar tækni sem kallast sjötta skilningarvitið, þar sem tæknin er notuð til að fá upplýsingar úr og hafa áhrif á raunheima.

Spurning hvort þetta verði jafn algengt og farsímar eftir 10 ár.
[Inniheldur myndband]
… skoða færslu »

Vísindin á bakvið loftslagsfyrirsagnir dagblaðanna

11/11/09 Ketill Jóelsson Engar athugasemdir
Vísindin á bakvið loftslagsfyrirsagnir dagblaðanna

Við sjáum reglulega fréttir í fjölmiðlum um loftslagsbreytingar og margir átta sig ekki á því hversu miklar rannsóknir standa á bakvið hverja frétt. Bakvið eina rannsókn, sem við sjáum sem þrjár efnisgreinar í dagblaði, stendur oft allt að 1000 blaðsíðna skýrsla sem var sett saman af hundruðum vísindamanna hvaðanæva úr heiminum.

Í þessu örstutta myndbandi frá TED ráðstefnunni núna í sumar, útskýrir Rachel Pike vísindin að baki loftslagsfyrirsögnum dagblaðanna.
… skoða færslu »

Nýjar athugasemdir

  • matthías orri elíasson: sælir...
  • Stefán Vilberg: Jább, væri gaman að væri nógu mikill peningur til. Ætli við ...
  • Arnar: Hálf svekkjandi að NASA er búið að blása af allar hugmyndir ...
  • Arnar: Var farinn að hafa áhyggjur, hlakka til að sjá eitthvað nýtt...
  • Guðni þór: Ef það þarf að búa til efnið þá ætti það eiginlega ekki að v...

Könnun

Hvernig finnst þér útlitið á nýju síðunni?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...

Póstlisti

Á póstlistann er sent fréttabréf tvisvar í mánuði með samansafni af því besta af síðunni