Leit

hafa samband

LOKA

Deila

LOKA

Forsíða » Ísland » Fréttir

Alþjóðleg athafnavika

16/11/09 Ketill Jóelsson Engar athugasemdir
Alþjóðleg athafnavika

Í dag byrjar Alþjóðleg athafnavika. Þar sem frumkvöðlastarfsemi og vísindi eiga margt sameiginlegt þá ætlum við að leggja okkar að mörkum. Með því að auglýsa viðburðinn.

Tekið af heimasíðu Alþjóðlegrar athafnaviku:

“16.-22. nóvember nk. verður haldin Alþjóðleg athafnavika í meira en 100 löndum og þar á meðal á Íslandi. Markmiðið er að vekja fólk til umhugsunar um gildi nýsköpunar og athafnasemi fyrir samfélagið. Við viljum senda jákvæð og uppbyggileg skilaboð til Íslendinga og snúa við umræðunni um atvinnulífið og gefa þjóðinni tilefni til að horfa björtum augum fram á veginn.”

“Við viljum hvetja þjóðina til framkvæmda og það verður áhugavert að sjá hversu miklu Íslendingar koma í verk á einni viku. Með þessu frumkvæði mun næsta kynslóð frumkvöðla fá innblástur og hvatningu til að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd. Við hvetjum alla, fyrirtæki sem einstaklinga, til að halda stóra sem smáa viðburði en þeir verða nánar auglýstir þegar nær dregur hér á síðunni.”

- Nánar á Athafnavika.is

Flest gott byrjar með einum athafnasömum frumkvöðli og hér á eftir langar mig að fjalla örlítið um það.

Hvort sem það er verslun, iðnaður, ferðaþjónusta eða annað sem viðkemur okkar daglega lífi og/eða neysluvenjum þá er nánast undantekningalaust hægt að rekja það til eins eða fárra athafnasamra einstaklinga.
… skoða færslu »

Rannsóknir á brjóstakrabbameini gefa góð fyrirheit

12/8/09 Ketill Jóelsson Engar athugasemdir

Rannsóknir stundaðar í tvo áratugi við Háskóla Íslands. Merkar rannsóknir hafa verið unnar hérlendis á sviði brjóstakrabbameins, en Helga M. Ögmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, hefur í tvo áratugi stundað rannsóknir á þessu sviði á rannsóknarstofu Krabbameinsfélags Íslands í sameinda- og frumulíffræði. Í ársbyrjun 2007 færðist rekstur rannsóknarstofunnar til læknadeildar Háskóla Íslands.

Helga fékk nýverið styrk vegna framúrskarandi árangurs við krabbameinsrannsóknir. „Með því að rækta krabbameinsfrumur beint úr æxli er hægt að nálgast betur upplýsingar um hegðun og eðli krabbameinsins …”

[Meira á vef HÍ]

Sautján ára íslenskur vísindamaður?

22/6/09 Þór Adam Engar athugasemdir

[Fengið frá vef ]

Verkefnið „Líkan að gervitaug“ bar sigur úr býtum í Landskeppni ungra vísindamanna sem fram fór við Háskóla Íslands á dögunum. Höfundur verkefnisins er Kári Már Reynisson, 17 ára nemandi við Menntaskólann Hraðbraut. Hann verður fulltrúi Íslands í Evrópukeppni ungra vísindamanna í París í haust.

Þar keppir Kári Már við unga og bráðefnilega vísindamenn frá þremur heimsálfum; Evrópu, Ameríku og Asíu. Kári Már er að ljúka stúdentsprófi frá Menntaskólanum Hraðbraut og stefnir á nám í lífefnafræði í Háskóla Íslands í haust. Hann var aðeins 12 ára þegar áhugi hans kviknaði á byggingu gervitaugar sem hugsanlega gæti hjálpað þeim sem orðið hefðu fyrir alvarlegum taugaskemmdum.

Allar götur síðan hefur hann þróað hugmyndina og aukið við þekkingu sína. Leiðbeinandi Kára Más við sigurverkefnið var Hilmar Pétursson, kennari við Menntaskólann Hraðbraut. Til aðstoðar við undirbúning og kynningu verkefnisins verða skólasystur Kára Más, þær Kristrún Ester Kristjánsdóttir og Sigrún Brynja Jensdóttir.

„Líkan að gervitaug“ byggir á hugmynd um hönnun tækis sem geti lesið taugaboð í enda taugar sem hefur farið í sundur, flytja þau ákveðna vegalengd og koma boðunum til skila til líffæris s.s. vöðva eða inn í fjarlægari taugaenda. Lagðar eru fram hugmyndir að því hvernig tengja má að saman lifandi taugavef og dauðan hlut úr ólífrænum efnum og gerviefnum. Í umsögn dómnefndar kemur m..a fram að verkefni Kára sé fullt af hugmyndaauðgi og útfærsluhugmyndir hans frumlegar.

„Hugmyndir eins og þessar hjá mjög ungum vísindamanni á að skoða gaumgæfilega og hvetja hann til frekari dáða á þessu sviði. Hver veit nema upp úr þeim hugmyndum vaxi raunverulegt tæki sem eigi eftir að bæta líf þeirra sem fást við alvarlegar taugaskemmdir.“ Ungir Vísindamenn er liður í áætlun Evrópusambandsins sem er ætlað að efla tengsl vísinda og samfélags.

Markmið keppninnar er að efla hæfni ungs fólks til að vinna að rannsóknarverkefnum og stuðla að frumkvæði og sjálfstæðum vinnubrögðum nemenda. Um 40 lönd taka þátt í keppninni að þessu sinni, sem nú er haldin í 21.skipti. Auk Evrópulanda senda Bandaríkin, Kína og Japan fulltrúa til keppninnar. Í dómnefnd landskeppninnar á Íslandi sitja í ár þeir Stefán B. Sigurðsson prófessor, fráfarandi forseti læknadeildar HÍ og nýr rektor Háskólans á Akureyri, Sigurður Brynjólfsson prófessor á verkfræði- og náttúruvísindasviði HÍ og Leifur Hauksson, dagskrárgerðarmaður RÚV.

Meistaravörn við Háskólann á Akureyri

3/6/09 Þór Adam Engar athugasemdir

Sigríður Helga Sigurðardóttir ver meistararitgerð sína í líftækni föstudaginn 5. júní. Heiti ritgerðar Sigríðar er: Framleiðsla líf-etanóls með erfðabreyttum örverum.

[Frekari upplýsingar á vef HA]

Sumarexem í útfluttum hestum

3/6/09 Þór Adam Engar athugasemdir

Í maí voru flutt tvö fræðsluerindi á Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum þar sem Sigurbjörg Þorsteinsdóttir ónæmisfræðingur og Mareike Heimann dýralæknir og doktorsnemi fjölluðu um kerfis- og staðbundið ónæmissvar í sumarexemi í hestum. Sigubjörg Þorsteinsdóttir ónæmisfræðingur og Mareike Heimann dýralæknir og doktorsnemni fluttu fræðsluerindi um kerfis- og staðbundið ónæmissvar í sumarexemi í hestum.

Sumarexem er IgE mótefnamiðlað ofnæmi í hrossum gegn prótínum úr smámýi (Culicoides spp) sem lifir ekki á Íslandi. Ofnæmið er vandamál í íslenskum hestum á erlendri grund. Exemið er mun algengara hjá íslenskum hestum sem fæddir eru á Íslandi og fluttir út, en hjá íslenskum hestum sem fæddir eru erlendis. Munurinn virðist liggja í stjórnun á boðefninu IL-4 sem ræsir IgE myndun. Hestar fæddir hér eru líklegri en íslenskir hestar fæddir í Evrópu til að svara smámýinu með aukningu í IL-4 myndandi T-frumum, IgE framleiðslu og exemi.

[Frekari upplýsingar á vef ]

Meistaravarnir í Háskólanum á Akureyri

31/5/09 Þór Adam Engar athugasemdir

Þann 2. júní munu 2 meistaravarnir fara fram í líftækni við Háskólann á Akureyri.

Hilma Eiðsdóttir Bakken mun verja ritgerðina:BioEthanol: Fuel of the future?

Margrét Auður Sigurbjörnsdóttir mun verja ritgerðina: Physiological and phylogenetic studies of Caloramator and Thermoanaerobacterium species: Ethanol and hydrogen production from complex biomass

[Nánari upplýsingar á Vef HA]

Nýjar athugasemdir

  • matthías orri elíasson: sælir...
  • Stefán Vilberg: Jább, væri gaman að væri nógu mikill peningur til. Ætli við ...
  • Arnar: Hálf svekkjandi að NASA er búið að blása af allar hugmyndir ...
  • Arnar: Var farinn að hafa áhyggjur, hlakka til að sjá eitthvað nýtt...
  • Guðni þór: Ef það þarf að búa til efnið þá ætti það eiginlega ekki að v...

Könnun

Hvernig finnst þér útlitið á nýju síðunni?

Sjá niðurstöður

Loading ... Loading ...

Póstlisti

Á póstlistann er sent fréttabréf tvisvar í mánuði með samansafni af því besta af síðunni